Milljarðafjárfesting og 70 störf til frambúðar í nýrri kersmiðju
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 04. nóv 2010 10:27 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Fyrsta skóflustungan að nýrri kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð
var tekin í gær, en stefnt er að því að hún verði tilbúin í ársbyrjun
2012. Heildarfjárfesting vegna kersmiðjunnar er áætluð um 3,5
milljarðar króna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar segir að á meðan framkvæmdum stendur munu 60-80 manns að jafnaði vinna við bygginguna en um 160 þegar umsvifin verða í hámarki. Rekstur kersmiðjunnar mun skapa um 70 ný störf til frambúðar, til viðbótar þeim 800 störfum sem þegar eru til staðar á álverssvæðinu við Reyðarfjörð.
Verkfræðistofan Hatch hefur umsjón með byggingunni fyrir Fjarðaál í samstarfi við verkfræðifyrirtækið HRV. Ýmsir fleiri innlendir aðilar munu koma að verkinu. Samið hefur verið við Tandraberg á Eskifirði um jarðvinnu við kersmiðjuna og verið er að ganga frá samningum við aðra verktaka um næstu áfanga verksins.
Kersmiðjan skiptist í þrjá hluta: kerfóðrunarbyggingu, kerbrotabyggingu og skrifstofubyggingu. Flatarmál bygginganna verður samtals rúmlega fjögur þúsund fermetrar.
Ál er framleitt í 336 kerum í álveri Fjarðaáls og þau þarf að endurnýja á 5-7 ára fresti. Í nýju kerfóðrunarbyggingunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu. Þar verður einnig svæði til að kæla ker, viðgerðaraðstaða og geymslusvæði fyrir ýmsan búnað. Í kerbrotabyggingunni verða kerin hreinsuð og kerbrotunum komið fyrir í gámum. Þau verða send í endurvinnslu til Bretlands þar sem þau enda sem hráefni í sement.