Ráðherra heitir áframhaldandi jöfnun flutningskostnaðar raforku
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 28. maí 2025 11:37 • Uppfært 28. maí 2025 13:05
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir ríkisstjórnina áforma frekari skref til að jafna dreifkostnað til kaupenda raforku um allt land. Fulltrúar Múlaþings hafa lýst því sem tvískinnungi að íbúar sem búa nálægt virkjunum greiði álag sem þeir sem eru fjær þurfa ekki að gera.
Jóhann Páll hefur þegar lagt til hækkun jöfnunargjalds og dreifbýlisframlags sem hann segir að lækki mánaðarlegan kostnað kaupenda í dreifbýli um 20% frá og með 1. júlí. Bæði á vorfundi Rarik í apríl og á fundi orkusveitarfélaga á mánudag boðaði hann enn stærri skref til jöfnunar á raforkukostnaði í haust.
Á þeim fundi var Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, einnig með erindi þar sem hún fagnaði breytingunum. Hún benti á tvískinnung þess að foreldrar hennar í Reykjavík greiddu ekkert gjald af flutningi raforku sem framleidd væri á Þjórsársvæðinu meðan íbúar nærri virkjunum þyrftu að gera það.
Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður byggðaráðs Múlaþings, ræddi þetta einnig á fundi sem Landsnet hélt á Egilsstöðum í byrjun maí. Þar sagði hún að ekki gengi að uppbygging dreifikerfis raforku byggði á að orka væri flutt frá Austurlandi til annarra notenda og seld þar á lægra verði. Hún kallaði eftir því að stjórnvöld jöfnuðu dreifikostnað milli þéttbýlis og dreifbýlis, annað kæmi ekki til greina.
Steindautt atvinnusvæði vegna dreifbýlisgjalds
Bæði Jónína og Berglind ræddu hvernig skilgreiningar dreifiveitna á dreifbýli falli ekki saman við skilgreiningar sveitarfélaga. Jónína sagði slíkt hafa afleiðingar, til dæmis fyrir Múlaþing sem hefur skipulagt atvinnusvæði við Valgerðarstaði norður af Fellabæ. Það er dreifbýli samkvæmt skilgreiningu Rarik og því bætist við álag á raforkuna.
„Þetta er okkar stærsta iðnaðarsvæði og þangað beinum við áhugasömum fyrirtækjum. En af því að Rarik vill meina að þarna eigi að vera dreifbýlisgjald telja fyrirtækin ekki borga sig að fara í uppbyggingu. Þess vegna er þetta dauðasvæði,“ sagði Jónína. Hún bætti við að álagið hindraði líka atvinnuuppbyggingu til sveita.
„Það ætti að verðlauna landssvæðin fyrir framleiðslu með forgangi að orku fyrir sín samfélög, bæði til atvinnulífs og vaxtar samfélagsins,“ sagði Berglind Harpa.