Ríkið gerir kröfur í Bjarnarey, Skrúð og Hafnarhólma

Íslenska ríkið hefur gert kröfu í tugi eyja og skerja úti fyrir Austfjörðum, þar á meðal Skrúð, Bjarnarey og Hafnarhólma. Papey er eina eyjan á svæðinu sem er undanþegin kröfunum. Óbyggðanefnd hefur kröfurnar nú til meðferðar.

Það er fjármála- og efnahagsráðherra sem leggur fram kröfurnar fyrir hönd íslenska ríkisins. Óbyggðanefnd er sjálfstæður rannsóknaraðili sem fer yfir kröfurnar og aflar heimilda um eignarhald og úrskurðar um það. Með opinberri tilkynningu hefur hún nú auglýst eftir gagnkröfum. Frestur til að senda þær inn er til 15. maí.

Kröfur ríkisins byggja á að landssvæðin hafi verið utan landsnáms, það er að samkvæmt frásögnum Landnámi hafi landnámið ekki náð til svæðanna. Þá liggi ekki fyrir heimildir um að síðar hafi stofnast til beins eignaréttar að svæðunum.

Í rökstuðningi ríkisins segir segir að um sé að ræða eyjar, sker og aðrar landfræðilegar einingar sem ekki hafi þótt fallnar til búsetu þótt eftir atvikum hafi verið hægt að hafa af þeim ýmsar nytjar. Þótt tilteknar jarðir eða aðilar hafi gert ákall til þessara landssvæða í gegnum tíðina bendi heimildir ekki til að tilkallið grundvallist á beinum eignarétti, auk þess sem óljóst sé hvernig umræddir aðilar hafi öðlast þau réttindi.

Til þessa hefur ríkið aðeins gert kröfur í land á meginlandinu sjálfu en nú er farið í svæði innan landhelginnar sem eru ofansjávar á stórstraumsfjöru. Gert er ráð fyrir að þetta verði lokaverkefni Óbyggðanefndar.

Eina eyjan við Austfirði sem er undanskilin er Papey. Er það vegna þess að hún var byggð í áratugi eftir að lög um hefð tóku gildi árið 1905. Aðeins eyjan sjálf er undanskilin en kröfum er lýst í sker í kringum hana.

Gerðar er kröfur í tugi nafngreindra eyja og skerja úti fyrir Austfjörðum, í raun þeirra svæða sem heimildir hafa fundist nöfn á. Að auki er krafa í ónafngreind sker sem standa upp úr á stórstraumsfjöru. Ríkið áskilur sér rétt til að bæta við svæðum eftir því sem rannsóknavinnu vindur fram.

Helstu eyjar og sker sem ríkið gerir kröfur í á Austfjörðum


Álftafjörður: Vigur, Skarfakambar, Ílsker, Skipamannahólmi, Óseyjar, Marksker, Lynghólmi, Brimilsnes, Þrúða, Skeljateigur, Nesbjörg, Skjöldur, Hrómundsey, Kambur, Þvottáreyjar, Hvalbakur
Berufjörður og Hamarsfjörður: Búlandseyjar, Sandey, Berufjarðareyjar
Breiðdalur: Breiðdalseyjar, Axarsker, Stampi, Selvogur
Fáskrúðsfjörður: Æðarsker og Andey, Skrúður
Reyðarfjörður: Hólmahólmar, Seley
Borgarfjörður: Hafnarhólmi
Vopnafjörður: Bjarnarey, Skiphólmi og Miðhólmi, Leiðarhafnarhólmi

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.