Aprílgabb: Samfélagmiðlum og streymisveitum gert að innheimta virðisaukaskatt
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 01. apr 2025 10:11 • Uppfært 02. apr 2025 10:22
Á fundi ríkisstjórnar Íslands í gær var samþykkt að leggja fram frumvarp síðar í vikunni þess efnis að lokað verði hér á landi fyrir aðgang almennings að mörgum af þekktustu samfélagsmiðlum á borð við Facebook, Instragram, X, Snapchat og TikTok, samþykki eigendur og forsvarsmenn þessara miðla ekki að innheimta og greiða til ríkissjóðs virðisaukaskatt af seldum auglýsingum.
Um 24% virðisaukaskatt verður að ræða en það er sama skatthlutfall og íslenskum fjölmiðlum er gert að innheimta fyrir auglýsingasölu og greiða í ríkissjóð. Frumvarp um skattlagningu streymisveitna og samfélagsmiðla verður birt í Samráðsgátt stjórnvalda síðar í vikunni.
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra talar fyrir málinu. Hann sagði eftir ríkisstjórnarfundinn að þessar aðgerðir væru meðal annars liður í að bæta samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla sem sitja ekki við sama borð og erlendir samfélagsmiðlar og streymisveitur. Eignarhald þeirra væri auk þess svo amerískt að jafnvel einn af eigendum samfélagsmiðlanna væri helsti ráðgjafi Bandaríkjaforseta.
Nú þegar hefur þessum fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar verið harðlega mótmælt, enda talið að þetta hafi skaðandi áhrif á samskipti fólks og nútíma venjur. Meðal annars hafa Neytendasamtökin bent á að samfélagsmiðlar væru nauðsynlegir nú á tímum upplýsingaóreiðu íslenskra fjölmiðla sem væru jafnvel að deila falsfréttum. Viðskiptaráð telur tillöguna einfaldlega fráleita.
Loks hefur Samband íslenskra framhaldsskólanemenda (SÍF) mótmælt og óttast að erlendir samfélagsmiðlar muni neita að innheimta virðisaukaskatt og því verði síðunum einfaldlega lokað líkt og gert var þegar áströlsk stjórnvöld reyndu það sama. SÍF hefur nú þegar hafið aðgerðir með því að skora á félagsmenn sína og almenning allan að deila meðfylgandi mynd á alla samfélagsmiðla og mótmæla þannig frumvarpi ríkisstjórnarinnar.