Sýknaður af ákæru um nauðgun

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað karlmann af ákæru um nauðgun þar sem ákæruvaldið hefði ekki sannað ásetning hans. Dómurinn mat framburð bæði ákærða og brotaþola allan tímann stöðugan og trúverðugan.

Fólkið hittist á skemmtistað að kvöldi haustið 2022 og lét þar vel hvort að öðru áður en leiðin lá heim til hans. Óumdeilt er að kynlífið þeirra hófst með beggja vilja en þegar á leið varð það töluvert harkalegt. Orð stendur gegn orði þeirra um milli um hvað þar fór fram.

Maðurinn var ákærður fyrir nauðgun, meðal annars þvingun til samræðis og hafa beitt hana ofbeldi á sama tíma, slegið hana og rifið í hér, þrátt fyrir að hún hafi beðið hann um að hætta. Hún hlaut mar víða um líkamann.

Fram kemur í dóminum að kynlífið hafi staðið í um tvo tíma. Eftir um klukkustund hafi hún verið orðin uppgefin og viljað hætta. Hún hafa streist á móti því en að lokum gefið alveg eftir. Hún hafi ekki þorað öðru vegna hótana hans og stjórnsemi. Á köflum bar konan við minnisleysi um atriði næturinnar en almennt hafi hún gefið góðar skýringar á öllum atriðum.

Maðurinn hélt því fram að hann hefði alltaf spurt um mörk hennar og neitaði að hafa séð nokkur hræðslumerki á henni eða að hún hefði streist á móti. Þvert á móti hefði hún tekið fullan þátt og á köflum átt frumkvæði um að halda áfram.

Mat heilbrigðisstarfsfólks


Konan leitaði til heilbrigðisþjónustu nokkrum dögum eftir atvikið. Fram kemur í dóminum að skýrsla þeirra um áverka styðji að mestu frásögn konunnar. Þó sé ekki hægt að rekja alla áverka beint til næturinnar. Þá kemur fram að vinir hennar hafi borið vitni um breytt geðslag hennar til hins verra og sálfræðingur staðfesti einkenni áfallastreitu.

Í niðurlagi dómsins segir að framburður konunnar hafi verið stöðugur, einlægur og trúverðugur. Ekkert óeðlilegt sé við viðbragðsleysi hennar um nóttina í ljósi ótta eða vonleysis gagnvart manninum. Því sé ekki vafi á að hún telji á sér brotið.

Þarf að sanna ásetning


Hins vegar sé ekki ljóst hvort manninum hafi verið það ljósti. Ekki sé heimild í lögum til að refsa fyrir kynferðisbrot af gáleysi, þvert á móti sé lögð skylda á ákæruvaldið að sanna ásetning. Í þessu tilfelli hafi héraðssaksóknara ekki tekist að sanna að manninum hafi verið ljóst að hann gengi gegn vilja konunnar. Maðurinn hafi allan tímann neitað sök og framburður hans verið stöðugur.

Maðurinn var því sýknaður af ákærunni. Sakarkostnaður upp á 3,2 milljónir króna greiðist úr ríkissjóði.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.