Um 40% austfirska fyrirtækja í vandræðum
Tæp fjörutíu prósent austfirskra fyrirtækja glíma við áhættu í rekstri umfram það sem eðlilegt getur talist eða eru orðin ógjaldfær eða í alvarlegum vanskilum. Sérfræðingur segir lykilatriði að bjarga fyrirtækjum á landsbyggðinni.
Þetta kemur fram í frétt Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins, í dag en byggt er á gögnum frá Creditinfo. Á Austurland eru skráð 769 fyrirtæki.
Af þeim er áhætta 26% umfram eðlileg mörk og 13% eru í vanskilum.
Verst er ástandið á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi þar sem 46-55% fyrirtækja eru „á bjargbrúninni.“
Blaðið hefur eftir Rakeli Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo, að þótt fyrirtækin séu flest á Höfuðborgarsvæðinu verði í endurreisnarstarfinu að leggja mesta áherslu á fyrirtækin á landsbyggðinni.
„Þar eru kannski ekki stærstu fyrirtækin en þau skipta miklu máli. Eitt gjaldþrot úti á landi getur haft gríðarleg áhrif á byggðarlagið.“