Varað við krapaflóðum og skriðum í leysingum
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 10. mar 2022 18:16 • Uppfært 10. mar 2022 18:17
Veðurstofan varar við skriðuföllum og krapaflóðum samhliða miklum rigningum á Austfjörðum og Suðausturlandi í dag og á morgun, föstudag. Ekki er talin hætta í byggð af þessum sökum.
Uppsöfnuð úrkoma frá fimmtudagseftirmiðdegi fram á laugardagsmorgun gæti víða orðið milli 200 og 300 mm til fjalla, mest á svæðinu frá Öræfum að Stöðvarfirði.
Hlýindi hafa verið á svæðinu í nokkra daga og snjór hefur blotnað og tekið upp. Enn er þó víða mikill snjór í giljum.
Vott snjóflóð féll úr Hallbjarnarstaðartindi í Skriðdal á miðvikudagsmorgun og litlar votar spýjur hafa fallið víðar.
Samkvæmt tilkynningu sem senda var út seinni partinn í dag er búist við vatnavöxtum og auknum líkum á skriðuföllum og grjóthruni, sér í lagi þar sem mest rignir. Einnig eru auknar líkur á votum snjóflóðum þar sem snjór er í fjöllum.
Ekki er talin vera hætta í byggð en fylgst er með aðstæðum. Tekið er fram að á Seyðisfirði er búist við heldur minni rigningu en sunnar á Austfjörðum. Því eru litlar líkur taldar á að þessi rigning og leysing hafi teljandi áhrif á stöðugleika í skriðusárinu. Náið verður þó fylgst með mælitækjum og þróun veðurs og aðstæðna.
Mynd úr safni.