Vegna mistaka við prentun Austurgluggans
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 10. maí 2024 16:57 • Uppfært 10. maí 2024 16:57
Við prentun Austurgluggans í þessari viku urðu þau mistök að fjórar síður frá síðustu viku voru endurprentaðar en fjórar síður, sem áttu að vera í blaði vikunnar, féllu niður.
Efni af þessum síðum verður bætt við Austurgluggann sem kemur í næstu viku til að tryggja að það nái örugglega til áskrifenda.
Þá er vert að minna á að rétt útgáfa blaðsins er aðgengileg í rafrænu formi hér: https://agl.austurfrett.is/p/austurfrett/9-5-2024/r/1/1/6507/1462539
Beðist er innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum.