Skip to main content

Engin ný smit á Vopnafirði, sýnatökur á morgun

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 03. jan 2022 15:06Uppfært 03. jan 2022 15:46

Vegna veðurs var öllum sýnatökum vegna COVID-19 aflýst á Austurlandi í dag. Það hefur vissulega áhrif á fjölda smittalna í fjórðungnum en fyrir liggur eftir sem áður að smit eru mörg og dreifð auk þess sem vaxandi fjöldi er í sóttkví.


Sýnataka var á Vopnafirði í gærdag af íbúum og starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Sundabúðar. Hún kom vel út, engin ný smit komu fram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir að sýnataka er áætluð á morgun á Vopnafirði, þriðjudaginn 4. janúar frá kl. 08:10 til 08:40, á Reyðarfirði kl. 09 – 10:30 og á Egilsstöðum Kl. 12 – 13:30

Að óbreyttu hefst aftur boð um örvunarbólusetningu (þriðju bólusetningu) í næstu viku og í kjölfarið einnig boð um bólusetningu barna á aldrinum 5 – 11 ára.

"Enn eru það persónulegar smitvarnir, aðgát og tillitssemi sem skilar árangri, nú þegar nærri 2 ár eru síðan við hófum þessa vegferð saman," segir í tilkynningunni.  "Áfram við öll."