Hjónin keyptu Hafnarbraut 2 í Neskaupstað
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 26. jan 2022 12:43 • Uppfært 26. jan 2022 12:43
Hjónin Guðröður Hákonarson og Þóra Lind Bjarkadóttir hafa fest kaup á Hafnarbraut 2 ehf. og þar með húseigninni að Hafnarbraut 2 í Neskaupstað.
Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að Hótel Hildibrand hefur haft húsið á leigu undanfarin ár fyrir starfsemi sína.
Hafnarbraut 2 ehf. var í eigu Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Síldarvinnslunnar hf. og Fjárfestingafélagsins Varar.
„Húsið á Hafnarbraut 2 á sér merka sögu en það var Kaupfélagið Fram sem reisti það og hóf þar verslunarstarfsemi árið 1951. Eftir að Kaupfélagið Fram hætti starfsemi var húsinu breytt þannig að á efri hæðum voru gerðar leiguíbúðir en á neðstu hæð þess voru bæjarskrifstofur um skeið. Hafnarbraut 2 ehf. festi kaup á húsinu árið 2013 og hefur það síðan verið leigt Hótel Hildibrand,“ segir á vefsíðunni.
„Þau hjón, Guðröður og Þóra Lind, eiga 50% hlut í Hótel Hildibrand og er gert ráð fyrir að það haldi áfram starfsemi sinni í húsinu með líkum hætti og verið hefur.“
Mynd:Frá undirritun samnings um söluna á Hafnarbraut 2 ehf. Talið frá vinstri: Guðmundur R. Gíslason framkvæmdastjóri SÚN, Axel Ísaksson fjármálastjóri Síldarvinnslunnar, Gunnþór B. Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar, Guðröður Hákonarson og Þóra Lind Bjarkadóttir./svn.is