Höttur með flugeldasýningu í stað Þrettándagleði
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 06. jan 2022 14:29 • Uppfært 06. jan 2022 14:29
„Vegna aðstæðna verður ekki haldin formleg Þrettándagleði Hattar í ár, heldur gerum við líkt og í fyrra. Haldin verður flugeldasýning sem Björgunarsveitin á Héraði mun sjá um eins og alltaf.“
Þetta kemur fram á Facebook síðu félagsins. Þar segir að skotið er frá Vilhjálmsvelli og því ættu flestir íbúar í þéttbýlinu á Héraði að geta notið sýningarinnar að heiman. Minnt er á að ekki skal mynda stóra hópa við þetta tilefni og virða skal sóttvarnarreglur sem eru í gildi.
Sýningin verður sett af stað kl 18:00 föstudaginn 7.janúar n.k. og samtímis mun Höttur birta tilkynningu á heimasíðunni sinni og Facebook um val á íþróttamönnum Hattar og þá sem fá heiðursmerki félagsins.
Höttur þakkar styrktaraðilunum sem hafa fylgt þessum viðburði síðustu árin; Hitaveita Egilsstaða og Fella, Brúnás Innréttingar og Landsbankinn. Einnig langar okkur að þakka Múlaþingi og ekki síst Björgunarsveitinni sem er mikilvægur hluti af okkar samfélagi eins og íþróttafélagið, að því er segir á Facebook.