Mánuður í að framkvæmdum við Eskifjarðarskóla ljúki
Umfangsmiklar framkvæmdir hafa haldið áfram í sumar við grunnskólann á Eskifirði, en þær hófust í byrjun árs 2023 eftir að staðfest var að mygla væri í húsnæðinu. Vinnunni á að ljúka um miðjan október.Samkvæmt upplýsingum frá Fjarðabyggð hefur frá áramótum verið unnið við að skipta glugga, einangra og klæða húsið að utan.
Eftir að skólahaldi lauk í vor hefur verið unnið að því að endurnýja þakdúk og setja nýtt þakjárn á austurþekjuna. Að vestanverðu er búið að fjarlægja þakglugga, gera nýtt burðarvirki og skipta um allt þakjárn.
Innan dyra er búið að einangra nýja loftið, setja dúk, rafmagnsgrind og lagnir. Loftklæðning á að vera komin upp um miðjan október og verkinu þar með lokið.
Heildarkostnaður við viðgerðirnar er áætlaður 256 milljónir króna. Þar af féllu 110 milljónir til í fyrra en 146 milljónir í ár.