Skip to main content

Óvissustigi aflétt á Seyðisfirði réttu ári eftir að fyrstu skriðurnar féllu á bæinn

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 15. des 2021 21:49Uppfært 15. des 2021 21:58

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi aflýst óvissustigi á Seyðisfirði vegna skriða sem féllu í desember 2020.

Rétt tæpu ári eftir að fyrstu skriðurnar féllu í Seyðisfirði með afleiðingum sem vart þarf að fara í hér hefur loks verið aflétt óvissustigi Almannavarna fyrir íbúa Seyðisfjarðar.

Síðasta árið hefur verið unnið að uppbyggingu á bráðavörnum ásamt uppsetningu á mælitækjum sem nema hreyfingar í hlíðum ofan Seyðisfjarðar.

Í haust mældist hreyfing á hrygg ofan við Búðará og var lýst yfir hættustigi og nokkur hús rýmd en lítil sem engin hreyfing hefur mælst á hryggnum síðan í byrjun nóvember.

Mjög vel er fylgst með aðstæðum á Seyðisfirði og verður almannavarnastig endurmetið ef hættan vex til dæmis ef veðurspár eru óhagstæðar eða miklar hreyfingar mælast í hlíðum ofan Seyðisfjarðar. 

Kynningarfundur verður haldinn á morgun, 16. desember, til að upplýsa íbúa í bænum um áformin og hvers vegna óvissustigi er aflétt nú.