Skip to main content

Söfn á Austurlandi búa við fjárskort og undirmönnun

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 07. jan 2022 09:47Uppfært 07. jan 2022 09:52

Í könnun sem Austurbrú vann fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) um söfn á Austurlandi kemur m.a. fram að austlenska safnaflóran er merkilega fjölbreytt. Hinsvegar líða söfnin fyrir fjárskort og eru undirmönnuð.

Þá kemur einnig fram að að meðaltal stöðugilda, rekstrartekjur og gestafjöldi viðurkenndra safna er lægstur á Austurlandi ef horft er til landsins í heild. Einnig kemur fram að safnafólk á Austurlandi er opið fyrir auknu samstarfi.

Fjallað er um málið á vefsíðu Austurbrúar. Þar segir að niðurstöðurnar verða kynntar á næstu vikum og Austurbrú mun hafa frumkvæði að því að kalla safnafólk saman til að opna samtalið um frekara samstarf og samvinnu. 

Fram kemur á vefsíðunni að könnunin var liður í aðgerðum sem skilgreind eru í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 sem samþykkt var á Alþingi þann 11. júní 2018. SSA fól Austurbrú að hafa yfirumsjón með verkefninu en árangur þess verður að lokum mældur í fjölda safna sem hefja samstarf eða sameinast.

Mörg og fjölbreytt

Þá segir að helsta niðurstaða könnunarinnar er sú að austfirsk söfn, setur og sýningar séu fjölmörg og fjölbreytt. Í þeim liggi mikil tækifæri varðandi varðveislu og tengingu við samfélagið fyrr og nú, ferðaþjónustu, fræðslustarf og aðrar skapandi greinar. Flestar, ef ekki allar rekstrareiningarnar, líði þó fyrir fjárskort og undirmönnun og ná þannig ekki „því flugi sem þær gætu“ líkt og það er orðað í skýrslunni. Þar segir ennfremur:

„Mikill tími forstöðumanna (og á stundum eina starfsmanns viðkomandi einingar) fer í rekstrartengt starf, að tryggja fjármagn til reksturs og aðra umsýslu sem kemur niður á framþróun í faglegu starfi. Nauðsynlegt er að finna leiðir til þess að minnka umfang þeirrar vinnu með sameiningu, auknu rekstrarfé, breyttu rekstrarformi, útvistun verkefna eða öðru til að skapa rými fyrir þann slagkraft sem nauðsynlegur er til þess að söfnin og safnatengd starfsemi nái að styrkjast og ná því flugi sem hún ætti að geta náð.“