Sýnataka á Djúpavogi á morgun
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 07. jan 2022 13:34 • Uppfært 07. jan 2022 13:35
COVID smit eru nú mjög dreifð á Austurlandi að því er segir í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Sýnataka er boðuð á morgun á Djúpavogi. Á sunnudag verður opnað fyrir sýnatöku á Egilsstöðum og Vopnafirði.
Á Austurlandi eru nú 94 í einangrun og 113 í sóttkví. Smit eru mjög dreifð um fjórðunginn eins og áður hefur komið fram. Á morgun, laugardaginn 8. janúar, verður sýnataka á Djúpavogi kl. 9-10 og eru íbúar og aðrir í nærsveitum hvattir til þess að nýta sér hana ef þeir hafa einhver einkenni eða grun um útsetningu fyrir smiti. Á sunnudag, 9. janúar, verður opið í sýnatöku á Egilsstöðum kl. 12-13:30 og á Vopnafirði kl. 13-13:30.