Orkumálinn 2024

Tvö smit um borð í Aðalsteini SU, allir um borð í sóttkví

Tvö COVID smit komu upp í loðnuskipinu Aðalsteini Jónssyni SU 11 á loðnumiðunum í vikunni. Skipið er komið til Eskifjarðar og eru allir um borð í sóttkví fram í næstu viku.

Páll Snorrason framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs hjá Eskju segir að hinir smituðu hafi verið fluttir frá borði en aðrir um borð séu komnir í fimm daga sóttkví. Jafnframt var skipið sótthreinsað.

„Það voru svo tekin sýni úr öllum að nýju og önnur sýnataka verður eftir fimm daga,“ segir Páll.

„Þetta ferli hefur gengið mjög vel hjá okkur en skýrar reglur eru hvernig bregðast eigi smitum um borð í skipum. Þessar reglur hafa verið óbreyttar frá því í fyrstu bylgjunni,“ segir Páll.

Aðspurður um framhaldið og hvenær Aðalsteinn Jónsson SU 11 heldur aftur til veiða segir Páll að verið sé að meta þá stöðu.

„Í augnablikinu erum við að einbeita okkur að því að leysa þennan smitvanda og síðan ákveðum við um framhaldið,“ segir Páll. „En það er ljóst að skipið fer ekki á veiðar fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.