Austurbrú auglýsir styrki til menningarstarfs
Austurbrú auglýsir eftir umsóknum til menningarstarfsemi á Austurlandi fyrir árið 2014 á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Austurbrú. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Austurlandi.Um er að ræða annars vegar verkefnastyrki til menningarstarfsemi og hins vegar stofn- og rekstrarstyrki til uppbyggingar menningarstofnanna. Menningarráð Austurlands hefur yfirumsjón með styrkveitingunni en gert er ráð fyrir að styrkirnir verði afhentir í byrjun árs 2014. Að þessu sinni leggur menningarráðið áherslu á eftirfarandi atriði við ákvörðun verkefnastyrkja:
• Verkefni sem hvetja til samstarfs milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina. Einnig verkefni sem hvetja til samstarfs milli samstarfssvæða Menningarráðs Austurlands sem eru Vesterålen í Noregi og Donegal á Írlandi.
• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
• Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
• Verkefni sem miða að því að listnemar og ungir listamenn frá Austurlandi komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.
• Undirbúningsstyrkir fyrir stærri samstarfsverkefni til að auðvelda aðilum undirbúning, kanna forsendur og búa til tengslanet. Umsókn þarf að fylgja staðfesting þátttakenda í verkefninu og lýsing á hlutverki hvers og eins þeirra.
Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur. Mikilvægt er að umsóknir séu rétt útfylltar og öllum skilyrðum fylgt, að öðrum kosti verður umsókn hafnað. Umsóknir skal senda í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og í átta eintökum í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir.
Tilgangur stofn- og rektrarstyrkja er að stuðla að því að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Menningarfulltrúi Austurbrúar verður með viðveru víða um Austurland áður en umsóknarfrestur rennur út og veitir ráðgjöf við gerð umsókna.
Umsóknum skal skilað til menningarsviðs Austurbrúar á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni. www.austurbru.is. Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, nýjar úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur. Styrkþegar frá árinu 2013 verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir árið 2014. Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 12. desember 2013 og umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila rafrænt á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..