LungA og HEIMA tilnefnd til norrænna frumkvöðlaverðlauna
LungA listahátíðin og á Seyðisfirði var nýverið tilnefnd til skandinavísku KBH verðlaunanna. Fulltrúar hátíðarinnar sóttu ráðstefnu sem verðlaunin voru afhent á í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu.„Auðvitað er það mikill heiður fyrir okkur að hafa hlotið tilnefningu. Það voru mörg flott verkefni í okkar flokkum og æðislega gaman að fá að eyða nokkrum dögum með þeim," segir Björt Sigfinnsdóttir, einn af forsvarsmönnum LungA og Heima.
KBH Awards eru í samstarfi við Yes Awards sem eru á vegum samtaka fyrir ungra verktaka. Á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn voru samankomnir 100 verkfræðingar og 50 frumkvöðlar úr ýmsum greinum, þar af tveir fulltrúar frá seyðfirsku verkefnunum tveimur.
Þátttakendum var síðan skipt upp í minni hópa sem leystu ýmsar þrautir í sameiningu. „Þetta var skemmtileg ferð og gaman að fá að hitta fólk frá öllum Norðurlöndunum. Við eignuðumst nýja tengilliði sem að líkindum koma til með að vinna okkur á einn hátt eða annan í framtíðinni."
HEIMA er setur fyrir listamenn og frumkvöðla sem komið hefur verið upp á Seyðisfirði. Menn vinna ýmist sér eða saman í 350 fermetra húsnæði.
LungA hátíðin hefur verið haldin á Seyðisfirði árlega frá árinu 2000. Í sumar voru þátttakendur 130 talsins og velta hátíðarinnar um tuttugu milljónir króna.