Hugmyndavinna kennd við ME: Erfiðast að lausirnar er ekki að finna í bókum

listnam hugmyndir me almarListnámsbraut varð í haust að fullgildri braut til stúdentsprófs við Menntaskólann á Egilsstöðum. Meðal nýrra áfanga er hugmyndavinna þar sem nemendum er kennt að hugsa út fyrir kassann og finna eigin lausnir á viðfangsefnum sínum.

Hópurinn kallar sig LÍFFÍFL sem stendur fyrir List í ferli og ferli í list en Agla Stefánsdóttir, fatahönnuður, kennir áfangann. Markmið hans er að nemendur kynnist skapandi ferli og fari í gegnum nokkur slík ferli sjálfir.

„Það sem reynist þeim kannski hvað erfiðast er að lausnirnar er ekki að finna í bókum eða á netinu. Þau læra að þau ein búa yfir réttu svörunum í sinni eigin listsköpun. Til að vel takist til verða þau að hafa trú á sér, vera gagnrýnin á eigin vinnu og deila sinni sýn á tiltekið viðfangsefni.

En það er akkúrat þetta sem kveikir í þeim og fær þau til að vilja gera vel. Ég held að þau verði oft hissa á hversu úrræðagóð og sniðug þau geta verið þegar þau setja sig í réttar -hugmyndavinnu- stellingar," segir Agla.

Nemendurnir læra aðferðafræði og verkferla sem þau prófa sig áfram með á eigin skinni við úrlausnir á fimm verkefnum. Meðal þess sem nemendur þjálfa er hugstormun, gagnrýnin hugsun, tilraunir og athuganir.

Nemendurnir eru afar ólíkir innbyrðis, með ólíka hæfileika og áhugasvið. Sumir stefna á leiklistarnám eða leikskólakennaranám, aðrir á hönnun eða kvikmyndagerð. Mjög margir eru enn óráðnir. Aldurinn er frá 16 upp í 21 árs svo um afar ólík sjónarmið og reynslu er að ræða. Í flestum verkefnanna geta þeir sniðið ferlin og lokaverkin að sínu áhugasviði.

Þetta er í fyrsta skipti sem áfanginn HUGMYNDAVINNA er kenndur við skólann sem hluti af áfanga framboði listnámsbrautar. Markmiðið er að nemendur kynnist skapandi ferli og fari í gegnum nokkur slík ferli sjálf.

Í lok annar er miðað við að nemendur verði orðnir þjálfaðir í að tala um hugmyndir, greina þær, vega og meta og myndgera þær svo aðrir skilji. Þeim er einnig kenndur „orðaforði sköpunar" sem gerir þeim kleift að tala á málefnalegan hátt um listir og hönnun.

Tveir ungir útskrifaðir hönnuðir og einn doktorsnemi; allir fyrrum nemendur í ME, hafa snúið heim í Hérað til að aðstoða Ólöfu Björk Bragadóttur, brautarstjóra listnámsbrautar við uppbygginguna. Þetta eru þær Sigríður Lára Sigurjónsdóttir doktorsnemi í sviðslistafræðum, sem kennir sviðslistir, Steinrún Ótta Stefánsdóttir vöruhönnuður, sem kennir hönnun auk Öglu.

Úrlausnir nemendanna á verkefnum áfangans ásamt öðrum upplýsingum má nálgast á: http://cargocollective.com/hugmyndavinna

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.