Spilaði með Grant hjá Letterman: Flogið á milli landa fyrir eitt lag - Myndband

kiddi tonleikarAustfirski trommarinn Kristinn Snær Agnarsson kom fram í sjónvarpsþætti David Letterman í Bandaríkjunum í gærkvöld í hljómsveit John Grant. Kristinn og félagar hans í hljómsveitinn flugu sérstaklega vestur um haf til að taka upp eitt lag fyrir þáttinn.

„Þetta var svakalega gaman. Andrúmsloftið var mjög afslappað enda allir sem að þættinum koma fagmenn fram í fingurgóma og gera þetta á hverjum degi," sagði Kristinn í samtali við Austurfrétt.

Þáttur David Letterman er sendur út frá New York á CBS sjónvarpsstöðinni á hverju kvöldi. Þátturinn hefur verið í gangi í rúm 20 ár og stutt í að þáttur númer 4000 í röðinni verður sendur út. Áætlað er að fjórar milljónir manna horfi á hvern þátt.

„Hann virðist hress og skemmtilegur náungi, örlítinn stríðinn," segir Kristinn um hin stuttu kynni sín af þáttastjórnandanum.

Grant og hljómsveit hans flugu frá Íslandi í fyrradag og halda heim í kvöld en tilgangur ferðarinnar var að spila lagið GMF í þætti Lettermans. „Það er gríðarlegt áhorf á þessa þætti og því er þetta mikil auglýsing og frábært tækifæri fyrir John," segir Kristinn um ferðina.

Kristinn hefur verið á ferðalagi með Grant um heiminn meira og minna síðan í mars í fyrra. Stoppið á Íslandi verður ekki langt því í næstu viku verður haldið til Ástralíu.



Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.