Sigurður hefur misst rúmlega 11 kg í The Biggest Loser Ísland - Myndband
Nú þegar þrjár vikur eru liðnar af raunveruleikaþáttunum The Biggest Loser Ísland sem sýndur er á SkjáEinum hefur Borgfirðingurinn Sigurður Jakobsson misst 11,3 kg af þyngd sinni, alls 8% af upphaflegri líkamsþyngd.Sigurður hefur staðið sig vel í þyngdarlosun og hefur mest losað sig við 5,3 kg á einni viku en hann keppir í bláa liðinu undir handleiðslu Guðríðar Torfadóttur.
Alls hafa keppendurnir tólf misst 137,5 kg eða að meðaltali 13,1 kg á hvern keppanda. Þrír keppendur eru fallnir úr leik, þau Óðinn Rafnsson, Inga Lára Guðlaugsdóttir og Aðalheiður Þóra Bragadóttir sem féll úr leik í þættinum í síðustu viku.
Öll þrjú voru í bláa liðinu hans Sigurðar og hefur liðið átt undir högg að sækja á fyrstu þremur vikunum. Mest missti Arnfinnur Daníelsson í fyrsta þættinum þegar hann losaði sig við 12,1 kg á aðeins einni viku sem er ótrúlegur árangur.
The Biggest Loser Ísland gengur út á meira en að fækka kílóum og ekki síður mikilvægt er að keppendur hafa misst að meðaltali 7,6% af líkamsþyngd sinni með breyttum lífstíl og nýju hugarfari gagnvart hollustu, hreyfingu og heilsu.
Þjálfarar þáttana leggja mikið upp úr að keppendur hefji breyttan lífstíl sem þau viðhalda eftir að þáttunum lýkur. Keppninni er ekki lokið fyrir þá keppendur sem sendir eru heim þar sem þau halda áfram að hreyfa sig af krafti og borða hollt eftir að heim er komið.
Lokaþátturinn verður í beinni útsendingu í apríl en þá kemur í ljós hvaða keppandi hefur náð mestum árangri.