Forsetinn dæmdi í kökukeppni: Sjaldan sem ég fæ svona skemmtilegt verkefni – Myndir

forseti sfk 0120 webÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var dómari í kökukeppni Skaftfells sem haldin var í tilefni sýningarloka á 15 ára afmælissýningu menningarmiðstöðvarinnar um helgina. Hann heimsótti einnig skóla á Seyðisfirði í ferð sinni þangað.

Forsetinn hafði boðað komu sína í Seyðisfjarðarskóla klukkan tíu um morguninn. Honum seinkaði hins vegar um 40 mínútur því blint var og erfitt að fara yfir Fjarðarheiði.

Nemendur í elstu bekkjum skólans tóku á móti Ólafi og kynntu fyrir honum lausn sína í Lego-keppninni frá síðustu viku. Þau fluttu einnig fyrir hann skemmtiatriðið úr keppninni sem var valið það besta.

Þaðan var haldið yfir í Nýja skóla þar sem yngri nemendur sungu fyrir forsetahjónin og sýndu þeim kúlnabraut sem unnin var sem kynning á eðlisfræði.

Ólafur Ragnar var upprifinn af lestrarátaki nemendanna og skýrði þar meðal annars frá því að hann hefði lesið fyrstu Harry Potter bókina.

Íþróttaskóli Hugins var einnig heimsóttur og tók forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, virkan þátt í honum en hún skellti sér í kaðlana með krökkunum.

Eftir hádegið var Eyrarrósin afhent í Skaftfelli og forsetinn dæmdi ásamt sýningarstjóranum Birni Roth í kökukeppni sem haldin í tilefni dagsins. Verið var að loka 15 ára afmælissýningu Skaftfells, Hnallþóru í sólinni.

„Það er sjaldan sem ég fæ svona skemmtilegt verkefni," sagði Ólafur. Ólafur og Björn léku við hvern sinn fingur en dæmt var eftir útliti, bragði, þéttleika og hollustu.

Þeir afþökkuðu aðstoð fleiri dómara, svo sem eiginkvenna sinna. „Við erum svo miklu meiri tertumenn," útskýrði Ólafur.

Þeir skiptust síðan á að skera kökurnar. „Finnst ykkur þetta ekki flott," sagði Ólafur og hélt hróðugur á kökusneið. „Jú" kallaði salurinn og forsetinn svaraði til baka. „Þetta er vel skorið!"

Þegar kom að erfiðari skurði sagði forsetinn hins vegar við meðdómara sinn: „Á ég ekki að leyfa þér að skera þessa." Björn snaraði sér úr jakkanum og hófst handa við að skera kökuna.

Að lokum var það kaka Þórunnar Eymundardóttur, fyrrum forstöðukonu Skaftfells, sem bar sigur úr býtum en hún kallaðist „Hnallþóra í sólinni."

Ólafur og Björn sögðu „sögulega tilvísun og stíllegan hreinleika" hafa skipt sköpum um valið. Hnallþóra Þórunnar var mun einfaldri að gerð en aðrar kökur í keppninni.

„Það er afar leitt að segja það við alla þá sem lögðu svona mikið í allar hinar kökurnar að þessi sem amma hefði getað bakað vinnur!"

forseti sfk 0005 webforseti sfk 0012 webforseti sfk 0013 webforseti sfk 0017 webforseti sfk 0018 webforseti sfk 0029 webforseti sfk 0032 webforseti sfk 0035 webforseti sfk 0039 webforseti sfk 0041 webforseti sfk 0046 webforseti sfk 0052 webforseti sfk 0055 webforseti sfk 0057 webforseti sfk 0059 webforseti sfk 0066 webforseti sfk 0072 webforseti sfk 0075 webforseti sfk 0078 webforseti sfk 0080 webforseti sfk 0087 webforseti sfk 0094 webforseti sfk 0100 webforseti sfk 0104 webforseti sfk 0105 webforseti sfk 0110 webforseti sfk 0112 webforseti sfk 0115 webforseti sfk 0119 webforseti sfk 0125 webforseti sfk 0134 web

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.