Háskólanám kynnt á Austurlandi: Námi í boði fyrir alla
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 10. mar 2014 13:45 • Uppfært 10. mar 2014 12:43
Austfirðingum gefst tækifæri til að kynna sér háskólanám í Menntaskólanum á Egilsstöðum á morgun. Verkefnastjóri segir fjölbreytt nám við allra hæfi í boði.
„Við hvetjum alla, bæði menntaskólanema, sem og almenning á Austurlandi, til þess að mæta og kynna sér það háskólanám sem er í boði á Íslandi í dag," segir Björg Magnúsdóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins í samtali við Austurfrétt.
„Það er ógurlega margt spennandi í boði, allt frá heilsuhagfræði til hestafræði, sagnfræði til skapandi tónlistarmiðlun og eiginlega allt þar á milli. Sem sagt ýmsir mögulegar sem eru vel þess virði að kynna sér."
Háskólar landsins standa að kynningu á háskólanámi í Menntaskólanum á Egilsstöðum á morgun, þriðjudaginn 11. mars milli klukkan 11 og 13:30. Samtals bjóða háskólar landsins upp á um 500 námsleiðir.
„Fulltrúar skólanna verða á staðnum á þessum tíma, svara öllum mögulegum og ómögulegum spurningum, útskýra nýjungar í náminu og gefa gott lesefni," segir Björg.
Háskóladagurinn er haldinn í 10. skipti í ár. Nánar má fræðast um Háskóladaginn á www.haskoladagurinn.is/.