Skógardagurinn mikli 10 ára
Skógardagurinn mikli verður haldinn í tíunda sinn í Hallormsstaðaskógi laugardaginn 21. júní og er dagskráin er margbreytileg að venju. Forleikur að dagskránni hefst raunar í kvöld þegar Landssamtök sauðfjárbænda og sauðfjárbændur á Austurlandi bjóða til veislu í Mörkinni á Hallormsstað. Þar verður grillað lambakjöt og tónlistarfólk skemmtir gestum.Um hádegi á laugardag hefst svo sjálfur Skógardagurinn mikli með Skógarhlaupinu þar sem hlaupnir verða 14 kílómetrar um skógarstíga. Skráning hefst kl. 11 en ræst verður kl. 12. Einnig er í boði skemmtiskokk, 4 km. hlaup fyrir alla, sem ræst verður kl. 12.15.
Formleg dagskrá hefst síðan klukkan 13 í Mörkinni á Hallormsstað með Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi. Þar er heitasta spurningin hvort hraustir skógarhöggsmenn eystra ná titlinum aftur austur en sigurvegari í fyrra var Örn Arnarson sem keppti fyrir Skógrækt ríkisins á Suðurlandi.
Skógar- og nautabændur bjóða upp á heilgrillað naut og með því, grillaðar verða pylsur en líka soðið ketilkaffi og steiktar lummur að hætti skógarmanna. Af skemmtiatriðum má nefna Héraðsdætur og Liljurnar, Pjakk og Petru og hestaleiguna á Hallormsstað sem sér um að teyma undir börnum svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst mun síðan hin fornfræga hljómsveit Dúkkulísurnar stíga á svið en nú eru 30 ár liðin frá því að sveitin stóð á sviði í Hallormsstaðaskógi síðast.
Skógardagurinn mikli er samvinnuverkefni Skógræktar ríkisins, Héraðs- og Austurlandsskóga, Félags skógarbænda á Austurlandi, Barra gróðrarstöðvar og Skógræktarfélags Austurlands. Aðgangseyrir er enginn og allir velkomnir.