Nýtt myndband Kaleo að miklu leyti tekið upp á Héraði
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 18. ágú 2014 16:49 • Uppfært 18. ágú 2014 16:50
Nýtt tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Kaleo úr Mosfellsbæ er að miklu leyti tekið upp á Fljótsdalshéraði. Það var frumsýnt fyrir helgi.
Lagið „All the Pretty Girls" hefur fengið nokkuð góða spilun í sumar og myndbandið endurspeglar sumarandann í laginu.
Stór hluti myndbandsins er tekinn upp á Fljótsdalshéraði og skartar að hluta til leikurum af svæðinu sem sjást syngjandi við varðeld og svamlandi í Lagarfljótinu.
Hljómsveitin er við Mosfellsbæ en trymbill hennar, Davíð Antonsson Crivello, er að hluta til alinn upp á Egilsstöðum. Sveitin kom austur í júní og spilaði þá á Jazzhátíð.