Leikskólabörn heiðursgestir við opnum sýningar í Sláturhúsinu
![bornin sja 2014](/images/stories/news/2014/bornin_sja_2014.jpg)
„Þetta vilja börnin sjá!" er sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum 2013. Markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga í barnabókum.
Þátttakendur keppa jafnframt um íslensku myndskreytingaverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Verðlaununum er ætlað að hvetja bæði útgefendur og höfunda texta og mynda til frekari dáða.
Þetta vilja börnin sjá! hófst í Gerðubergi í janúar á þessu ári með verðlaunaafhendingu þar sem Lani Yamamoto hlaut íslensku myndskreytingaverðlaunin 2013 fyrir bókina Stína stórasæng.
Sýningin er farandsýning og hefur hún verið sett upp víða um land síðustu ár.
Þátttakendur í sýningunni í ár eru: Auður Þórhallsdóttir, Bernd Ogrodnik, Björk Bjarkadóttir, Bojan Radovanovic, Dagný Reykjalín, Elsa Nielsen, Erla María Árnadóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Guðrún Hilmisdóttir, Halla Sigríður Haugen, Íris Jónsdóttir, Jenny Rojas, Katrín Óskarsdóttir, Kristín Arngrímsdóttir, Kristín María Ingimarsdóttir, Lani Yamamoto, Linda Ólafsdóttir, Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Madmax, Pétur Guðmundsson, Rosaria Battiloro, Sigrún Eldjárn, Sigrún Erla Karlsdóttir, Stephen Fairbairn, Vladimiro Rikowski, Þórir Karl Celin.
Opnanirnar verða tvær, annars vegar klukkan 10:00 á miðvikudag og síðan á fimmtudag á sama tíma. Sýningin er opin miðvikudaga-fimmtudaga 18-22 og laugardaga 13-17.