Fjölmenni á útgáfuhófi Ingunnar Snædal
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 05. maí 2015 19:30 • Uppfært 05. maí 2015 19:32
Fullt var út úr dyrum á útgáfu hófi Ljóðasafns Ingunnar Snædal sem haldið var á Bókakaffi á sunnudaginn var. Nýútkomið er heildarsafn ljóða hennar.
Í þessu ljóðasafni eru bækur Ingunnar fimm - og fáein áður óbirt ljóð - samankomnar í einu bindi. Ingunn gaf fyrst út bókina „Á heitu malbiki" árið 1995 og síðan hafa fjórar aðrar fylgt á eftir.
Ellefu ár eru síðan „Guðlausir menn – hugleiðingar um jökulvatn og ást" kom út en fyrir hana fékk Ingunn bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna auk þess sem hún seldist mjög vel.
Í kjölfarið fylgdu „Í fjarveru trjáa: vegaljóð," „Komin til að vera, nóttin" og „Það sem ég hefði átt að segja næst: þráhyggjusögur."
Á útgáfuhófinu las Ingunn upp eitt ljóð úr hverri bók auk þess sem hún áritaði bókina en margir gestir nýttu tækifærið til að ná sér í eintak.