„Þörfin er því miður ekki minni nú en áður": Álfurinn seldur um land allt fyrir SÁÁ

alfurinn 2015Árleg álfasala SÁÁ hófst í gær og stendur fram á sunnudag, en hún er nú haldin í 26. skipti.

Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ, en alls eru um 20% af kostnaði við alla áfengismeðferð á vegum samtakanna greidd með söfnunarfé.

Líkt og áður er slagorð álfasölunnar í ár: „Álfurinn fyrir unga fólkið". Með því er lögð áhersla á að styðja við og efla meðferðarúrræði samtakanna fyrir unga fíkla og einnig fyrir aðstandendur, þar á meðal börn alkóhólista.

Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa um 8000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn. Fjölskyldudeild SÁÁ býður meðal annars sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Um 900 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er að nær öllu leyti kostuð af söfnunarfé.

Álfasala SÁÁ er umfangsmesta fjáröflunarverkefni á vegum almannasamtaka sem fram fer á hverju ári hér á landi. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað samtökunum um 550 milljónum króna í hreinar tekjur. Um eitt þúsund manns um land allt vinna við álfasöluna næstu daga, þar á meðal fjölmargir hópar á vegum íþróttafélaga, skóla og ýmissa samtaka, sem fá sölulaun sem þau nýta til að fjármagna ferðalög eða önnur verkefni á eigin vegum og í eigin nærumhverfi.


Þakklát fyrir stuðninginn

Arnþór Jónsson er formaður SÁÁ. „SÁÁ rekur sjúkrahús og meðferðarstofnanir sem hjálpa fólki að losna úr fjötrum áfengis og annarra vímuefna. Ríkið borgar hluta af kostnaðinum en til að geta sinnt þörfinni þurfa samtökin að safna miklum fjármunum.

Álfasalan og önnur fjáröflunarverkefni hafa gríðarlega þýðingu fyrir SÁÁ. Reynslan sýnir að þjóðin vill styðja við bakið á SÁÁ og tryggja að samtökin veiti fíklum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er. Ef samtökin nytu ekki beint fjárhagslegs stuðnings almennings þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi 1. október ár hvert eða fækka um fjórðung þeim sjúklingum sem þar komast inn. Við erum þakklát fyrir stuðninginn í gegnum árin en þörfin er því miður ekki minni nú en áður. Styðjum SÁÁ - Kaupum álfinn!"


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.