Eitthvað fyrir alla um helgina
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 30. júl 2015 15:55 • Uppfært 30. júl 2015 22:20
Tvær rótgrónar fjölskylduhátíðir verða haldnar í fjórðungnum um verslunarmannahelgina, Neistaflug í Neskaupstað og Álfaborgarsjens á Borgarfirði.
Neistaflug hefst nú síðdegis með því að bærinn verður skreyttur hátt og lágt. Í kvöld verður sundlaugargleði í sundlaug Norðfjarðar og hljómsveitin Valdimar heldur tónleika í Egilsbúð.
Fjölbreytt dagskrá verður alla helgina og að sjálfsögðu verða „heimalningarnir" Gunni og Felix á svæðinu. Dagskrána í heild sinni má sjá hér.
Að vanda hefst Álfaborgarsjens á föstudaginn með hinu árlega hagyrðingamóti sem haldið er í Fjarðaborg.
Á laugardaginn verða stórtónleikar með Hundi í óskilum í Fjarðaborg.
Þeir sem vilja gera vel við sig í mat og drykk ættu að skreppa á hið rómaða kaffihlaðborð á Sólbrekku í Mjóafirði á mánudaginn, en lifandi tónlist yfir borðhaldinu.
Sama dag verður borðið upp á skoðunarferð um Dalatangarvita og þokulúðurinn settur í gang.