„Margir kjósa að vera á skíðum um jólin“
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 03. des 2015 12:10 • Uppfært 03. des 2015 12:20
Stefnt er á að opna Skíðamiðstöðina í Oddsskarði annan í jólum ef aðstæður leyfa.
Það er góður grunnur í fjallinu, en það reif ansi mikið í burtu í rokinu um daginn," segir Ómar Skarphéðinsson, umsjónarmaður skíðamiðstöðvarinnar.
„Það er kalt framundan og það eru alveg tvær vikur til stefnu. Það þarf ekki mikla viðbót til þess að þetta gangi allt saman upp.
Það er draumurinn að hafa opið um jólin, en margir eiga frí milli hátíðana og kjósa að vera á skíðum. Um helgaropnun yrði að ræða þessa daga, eða frá 11:00-16:00.