Skip to main content

Skapandi greinar á Seyðisfirði kortlagðar

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 15. jún 2013 14:00Uppfært 15. jún 2013 14:08

seydisfjordurListamannateymið RoShamBo, í góðri samvinnu við Skaftfell – miðstöð myndlistar á Austurlandi hefur nú lokið vinnu við vefkort sem hefur að geyma upplýsingar um öll helstu verkstæði, vinnustofur, sýningarými og áhugaverða staði á Seyðisfirði. 


Kortið er hugsað fyrir alla þá sem starfa innan skapandi geirans; listamenn, hönnuðir, handverksmenn og aðrir sem hafa hug á að vinna á svæðinu, framkvæma verkefni, framleiða verk eða leggjast í rannsóknir og þróunarvinnu. Því má segja að kortið þjóni þeim aðilum sem þar koma fram og skjólstæðingum þeirra og viðskiptavinum.

Nú þegar eru gestalistamenn Skaftfells farnir að nýta sér kortið en lengi hefur verið þörf fyrir slíkan gagnagrunn, ekki síst nú í ljósi töluverðar aukningar í fjölda listamanna og hönnuða sem dvelja á Seyðisfirði á vegum Skaftfells, LungA, LungA skólans, Heima, Skála, Ullarvinnslu frú Láru og annarra.

Gerð kortsins er styrkt af Menningarráði Austurlands.