Bláklædda konan og fornar gersemar: Málstofa um fornminjar Austurlands

Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur sem stýrt hefur stærstu fornleifarannsóknum Austurlands til þessa, verður aðalfyrirlesari í málstofu sem haldin verður um málefni fornminja Austurlands á laugardag.


Erindi Steinunnar kallast „Landnámskona frá Litlu-Ketilsstöðum á Héraði“ þar sem hún fjallar um "bláklæddu konuna" svonefndu sem fannst í Hjaltastaðaþinghá 1938, en ný tækni hefur gert sérfræðingum kleyft að rýna í þennan fund með nýstárlegum hætti.

Aðrir sem taka til máls um málefni fornminja Austurlands eru: Ármann Guðmundsson, fornleifafræðingur Þjóðminjasafni Íslands, Baldur Pálsson, formaður Söguslóða Austurlands, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar og Þuríður Elísa Harðardóttir, minjavörður Austurlands, Minjastofnun Íslands.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður.

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Söguslóða Austurlands og Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands á Austurlandi. Markmiðið er að efna til samræðu milli sérfræðinga og almennings um málefni fornminja Austurlands. Austfirðingar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um forminjaarf Austurlands.

Málstofan verður á Hótel Héraði klukkan 14-17 á laugardag.

Steinunn situr fremst ásamt hópi fornleifafræðinga sem hún stýrði í uppgreftri á Skriðuklaustri. 

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.