Diskóhlaðan opnar á Karlsstöðum: Engin boðskort en allir velkomnir

Um helgina opnar Havarí nýtt veitinga- og viðburðarými í hlöðunni á Karlstöðum í Berufirði. Þar er ætlunin er að blanda saman myndlist, tónlist og grænmetisréttum.


Hjónin Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler, bændur á Karlsstöðum í Berufirði fara ekki troðnar slóðir í sínum búskap. Þau starfrækja matvælaframleiðslu, gistiheimili og menningarstarfsemi undir merki Havarí og um helgina bætist við veitingastaður.

Framkvæmdir hófust í hlöðunni á Karlstöðum í apríl en á morgun, laugardaginn 11. júní, verður haldið opnunarpartý. Partýið hefst klukkan 7 og segir Svavar Pétur að engin boðskort hafi verið send út en allir séu velkomnir.

Veitingastaðurinn opnar svo formlega eftir helgi, eða um leið og öll leyfi berast með pósti. Á veitingastaðnum verður boðið uppá grænmetis skyndibita og verður ekkert kjöt á matseðli. Havarí hefur einmitt um nokkurt skeið framleitt og selt grænmetispylsur undir vöruheitinu Bulsur og Sveitasnakk þurrkuðum úr rófum.

Veitingastaðurinn verður opinn í sumar og fram á haust en óákveðið er hvernig opnun verður háttað í vetur. Þó er gert ráð fyrir að haldnir verði tónleikar og aðrir viðburðir í rýminu allan ársins hring.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.