Leikari á sjúkrahúsi eftir kitl í spítalagríni

Þór Ragnarsson, sem upphaflega átti að leika aðalhlutverkið í uppsetningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á verkinu Allra meina bót, er á leið í uppskurð eftir að hafa slasast á æfingu nokkrum dögum fyrir frumsýningu.


„Það átti að kitla mig í verkinu og mig kitlar svo svakalega að á einni æfingunni flaug ég fram úr rúminu og lenti á því. Ég sleit taug í öxlinni og er á leið í uppskurð á morgun,“ segir Þór.

„Þetta var fjórum dögum fyrir frumsýningu. Ég var sendur suður í myndatöku með hraði og fékk út úr henni tveimur dögum síðar.“

Einar Rafn Haraldsson, sem leikstýrir verkinu ásamt Freyju Kristjánsdóttur, hljóp í skarðið fyrir Þór og leikur braskarann og flagarann Pétur S. Betúelsson sem leitar skjóls á sjúkrahúsi undan réttvísinni.

Verkið var frumsýnt um síðustu helgi en sýningin ferðast um félagsheimili á Héraði og Borgarfirði á næstu tveimur vikum. Í kvöld verður sýnt á Iðavöllum.

Þór hefur farið með leikhópnum í þær sýningar sem búnar eru. „Maður hættir ekkert. Ég fylgi verkinu eins lengi og ég get. Ég fer núna í uppskurð og kem til baka og verð með í restinni.

Það er gaman að sitja í salnum og kunna verkið. Einar Rafn leysir þetta líka mjög vel.“

Nánar var fjallað um sýninguna í þættinum Að austan sem sýndur var á N4 á fimmtudagskvöld.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.