ME í Gettu betur í kvöld
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 13. feb 2010 13:15 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Spurningalið Menntaskólans á Egilsstöðum mætir Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í fyrstu viðureign fjórðungsúrslita spurningakeppninnar Gettu betur í Sjónvarpinu í kvöld. ME komst áfram með að vinna lið Menntaskólans við Sund og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Keppnin í kvöld hefst klukkan 20:10 í beinni útsendingu. Lið ME skipa þeir Arnar Jón Guðmundsson, Hrólfur Eyjólfsson og Jóhann Atli Hafliðason.