Miðasala á Bræðsluna hefst á þriðjudaginn

Miðasala á tónlistarhátíðin Bræðslan hefst í næstu viku, en hátíðin verður sem fyrr helgina fyrir verslunarmannahelgi, eða laugardagskvöldið 23. júlí.



Dagskrá hátíðarinnar liggur nú fyrir og segja má að hún sé alþjóðlegri en oft áður, en þrír erlendir listamenn koma fram þetta árið.

Frá Írlandi kemur Gavin James, ungt söngvaskáld sem meðal annars hefur hitað upp fyrir Sam Smith og Ed Sheeran, frá Kanada kemur David Celia, sem meðal annars hefur spilað með Emiliönu Torrini á tónleikum hennar í Kanada á síðasta ári og þá mun hin danska Tina Dico koma fram í Bræðslunni ásamt Helga Jónssyni.

Auk þeirra koma þau Soffía Björg, KK band, Amaba Dama og Nýdönsk fram á Bræðslunni þetta árið. Sem fyrr verður Bræðslan haldin í góðu samstarfi við Rás 2 sem mun senda tónleikana út í beinni útsendingu.

Miðasala á Bræðsluna mun hefjast þriðjudaginn 15. mars klukkan 10:00. Mjög takmarkaður fjöldi miða er til sölu og síðastliðin ár hafa þeir selst upp á mjög skömmum tíma.

Allar nánari upplýsingar um hátíðina og um Borgarfjörð eystra er að finna á vefsíðunum braedslan.com og borgarfjordureystri.is.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.