Námskeiðið Brautargengi á Austurlandi
Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður nú upp á námskeiðið Brautargengi á Austurlandi vormisserið 2013 en alls hafa nærri eitt þúsund konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.
Brautargengi er 75 kennslustunda námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur.
Fyrir hverja er Brautargengi?
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir konur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Eina inntökuskilyrðið er að þátttakendur hafi hugmynd til að vinna með á meðan námskeiðinu stendur.
Kennt er einu sinni í viku, 4,5 klst. í senn í 15 vikur.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
- Skrifi viðskiptaáætlun um viðskiptahugmyndina eða starfandi fyrirtæki
- Kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
- Öðlist hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun
Námskeiðið byggist upp á hagnýtum fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónulegri aðstoð við verkefni þátttakenda og hentar jafnt konum sem eru að hefja rekstur og konum sem reka nú þegar fyrirtæki.
Kennsla hefst 19. febrúar og áformað að ljúka námskeiði með útskrift þann 30. maí. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, www.nmi.is eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra, í síma 522 9434, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..