Skip to main content

Súðbyrðingur: Saga báts

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 24. apr 2011 13:06Uppfært 08. jan 2016 19:22

sudbyrdingur.jpgHeimildamyndin Súðbyrðingur - saga báts eftir Ásdísi Thoroddsen verður sýnd í Seyðisfjarðarbíói, annan í páskum, 25. apríl, klukkan 20:30.

 

Fjórir menn taka sér fyrir hendur að smíða bát eftir Staðarskektunni, sem fúnað hefur í grasi í Reykhólasveit.  Samhliða því sem nýi báturinn tekur á sig mynd er sögð saga bátasmíða á Norðurlöndum.

Byrjað er á kilinum, sem þróaðist frá eintrjáningi steinaldar, og svo þegar báturinn er byrtur er sagt frá skinnbátum bronsaldar og helluristum, fórnum á bátum og mönnum til ókunnra guða, en elsti súðbyrðingurinn sem vitað er um varðveittist á einum slíkum blótstað, sýnd hin glæstu skip víkingaaldar, sýndar myndir frá selveiðimönnum í Eystrasaltinu sem lögðust út á ísinn og sváfu í einkennilega löguðum bátum sínum, og áfram er smíðað, böndin og borðstokkarnir, og þá er komið til Færeyja þar sem keppt er í róðri í nýrri gerð af súðbyrðingum á Ólafsvöku.

Að lokum er báturinn klár og seglin saumuð og þá er sjósetning og smiðirnir sigla út á Breiðafjörð, til fortíðar þeirra sjálfra, þar sem súðbyrðingar voru smíðaðir og notaðir  - heima.

Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum ,,báti" sem kvikmyndin er, rúmast margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða sem búa á Norðurlöndum.

Leikstjóri svarar spurningum áhorfenda að sýningu lokinni.