Skip to main content

Ungt fólk og lýðræði á Egilsstöðum

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 01. mar 2013 12:58Uppfært 08. jan 2016 19:23

umfi_ungt_folk_lydraedi_2012_0011_web.jpg
Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum dagana 20. - 22. mars. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er þáttaka ungs fólks í skipulagsmálum sveitarfélaga.
 

Ráðstefnan er nú haldin í fjórða sinn en mikil ánægja hefur verið með ráðstefnuna síðustu ár og hafa margir óskað eftir því að UMFÍ haldi áfram að leiða starf ungmenna í landinu.

Fulltrúar í ungmennaráði UMFÍ aðstoða við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar. Ungmenna- og Íþróttasamband Austurlands er gestgjafi ráðstefunnar að þessu sinni og kemur einnig að undirbúning hennar í samstafi við Fljótsdalshérað.

Ráðstefnan er með öllu vímuefnalaus og þátttakendur undir 18 ára aldri skulu mæta í fylgd fullorðins aðila. Alls eru 75 sæti fyrir ráðstefnugesti í boði.

Dagskrá: 

Miðvikudagur 20.mars
Móttaka og afhending ráðstefnugagna
20:00 Kvöldverður
Samhristingur og dagskrá kynnt: Sabína Steinunn Halldórsdóttir
Verkefni úr Kompás: Ungmennaráð UMFÍ

Fimmtudagur 21.mars
Morgunleikfimi og morgunverður
9:00 Dagskrá hefst
10:00 Ávarp gesta og formleg setning
Fyrirlesarar:
Katrín Karlsdóttir, M.Sc. í skipulagsverkfræði og umhverfissálarfræði.
Umboðsmaður barna
Verkefni úr Kompás: Ungmennaráð UMFÍ
Hádegisverður
Vinnustofurtengdar efni fyrirlesara, umsjón í höndum fyrirlesara og starfsmanna UMFÍ.
Hressing
Kynnisferð: Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs
Kvöldverður
Verkefni úr Kompás: Ungmennaráð UMFÍ
Kvöldvaka: Ungmennaráð UMFÍ

Föstudagur 22.mars
Morgunleikfimi og morgunverður
9:00 Vinnustofur hefjast
Verkefni úr Kompás: Ungmennaráð UMFÍ
Hádegisverður
13:00 Niðurstöður hvers hóps kynntar
Umræður, samantekt og ályktun: Formaður UÍA – Gunnar Gunnarsson
15:00 Ráðstefnuslit

Þátttökugjald er kr. 10.000. –
UMFÍ tekur þátt í ferðakostnaði þátttakenda. Nánari upplýsingar og skráning hjá Sabínu Steinunni Halldórsdóttur, landsfulltrúa í síma 568-2929 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Skráningarfrestur er til 13. mars.