Andlát: Guðjón Sveinsson rithöfundur

Guðjón Sveinsson, rithöfundur úr Breiðdal, lést á Landsspítala Fossvogi þann 21. ágúst síðastliðinn.

Guðjón var fæddur að Þverhamri í Breiðdal 25. maí 1937. Hann lauk landsprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum 1955 og Hinu meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1961.

Guðjón fékkst við ýmis störf í gegnum tíðina, starfaði sem sjómaður, stýrimaður, kennari, afgreiðslumaður, skrifstofumaður, stundaði búskap og var virkur í trúnaðar- og félagsstörfum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Rithöfundasambandsins. Meðal annars sat Guðjón í hreppsnefnd Breiðdalshrepps frá 1970-1990 og var oddviti um átta ára skeið.

Guðjón skrifaði bækur fyrir börn og unglinga, orti ljóð, skrifað ritgerðir og lét að sér kveða í þjóðmálaumræðunni með skrifum í blöð og tímarit. Ljóð hans og smásögur hafa einnig birst á þeim vettvangi.

Fyrsta barna- og unglingabók Guðjóns, Njósnir að næturþeli, kom út 1967. Hann hlaut fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Félags íslenskra móðurmálskennara fyrir söguna Morgundögg árið 1981. Af öðrum verkum hans má nefna barnabækur um Glaumbæinga sem komu út á níunda áratugnum, Leitina að Mórukollu frá árinu 1991 og Söguna af Daníel, skáldsögu sem kom út í fjórum bindum á tíunda áratugnum.

Síðasta ljóðabók Guðjóns Þegar skó af skönkum dreg – við skapadóm kom út hjá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi síðasta haust. Var hún bæði safn af úrvali ljóða Guðjóns sem og áður óbirtum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.