Ferðamanns leitað í Norðurdal Fljótsdals
Björgunarsveitir voru kallaðar út í nótt, upp úr miðnætti til að leita ferðamanns sem var einn á ferð, inn af Fljótsdal. Maðurinn kom fram skömmu eftir að leit hófst, laust fyrir klukkan 2 í nótt.
Discovery myndaði lunda á Borgarfirði
Fjarðabyggð: Engin sátt að kippa burtu störfum og færa þau annað
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mótmælir báðum frumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á kvótakerfinu. Hún lýsir áhyggjum sínum af áhrifum þess á atvinnulíf í sveitarfélaginu.
Hvorki asi né átök: Kalli Sveins fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélagsins
Karl Sveinsson, útgerðarmaður á Borgarfirði, fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands þegar þau voru afhent fyrir skemmstu. Karl hefur stundað útgerð á Borgarfirði í 35 ár en hann hefur einnig spreytt sig í öðrum atvinnugreinum, til dæmis gæsarækt og kaffihúsarekstri.
Stefnumót við Stjórnlagaráð. Landsbyggðin og stjórnsýslan.
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs stóð fyrir opnum fundi í Valaskjálf. Frummælendur voru Salvör Nordal formaður Stjórnlagaráðs, Ari Teitsson varaformaður og Vilhjálmur Þorsteinsson að hálfu Stjórnlagaráðs.
Helgi Hall: Vatnajökulsþjóðgarður er sýndarmennska
Náttúrufræðingurinn Helgi Hallgrímsson segir meira hugsað um ferðamenn heldur en náttúruna í Vatnajökulsþjóðgarði. Gestastofan á Skriðuklaustri er til marks um það. Öfgahópar í báðar áttir geri það að verkum að náttúruvernd á Íslandi hafi ekki verið jafn illa stödd í áratugi.
Síldarvinnslan hlaut forvarnarverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar
Síldarvinnslan hf. hlaut í ár Varðbergið, forvarnaverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar (TM). Verðlaunin, sem veitt hafa verið frá árinu 1999, eru veitt þeim viðskiptavini TM sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum os slysum.
Vaskar konur frá Hallormsstað hlutu hvatningarverðlaun TAKs
Þær Bergrún Arna Þorsteinsdóttir og Guðný Vésteinsdóttir frá Hallormsstað, sem reka fyrirtækið Holt og heiðar ehf., fengu nýverið hvatningarverðlaun Tengslanets austfirskra kvenna (TAK).Dæmdur fyrir að fara inn á heimili fyrrum sambýliskonu
Héraðsdómur Austurlands dæmdi í vikunni karlmann fyrir að hafa farið inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu sinnar og tekið þaðan ýmsan húsbúnað sem hann taldi sig eiga.
Metúrkoma víða á Austurlandi í maí
Úrkomumet voru slegin víða á Austurlandi í síðastliðnum maímánuði. Kuldamet var sett á Brúarjökli.
Júnísnjór á austfirskum vegum
Snjó fór að kyngja niður víða á Austurlandi, einkum inn til landsins, upp úr hádegi í dag. Heldur dró úr úrkomunni undir kvöld en vetrarlegt er víða um að litast.