Ellefu einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri framsóknarfólks á Fljótsdalshéraði, sem fram fer laugardaginn 6. mars næstkomandi. Alls fjórar konur gefa kost á sér, og sjö karlmenn. Í prófkjörinu gefur enginn af sitjandi bæjarfulltrúum flokksins, þau Björn Ármann Ólafsson, Anna Sigríður Karlsdóttir og Jónas Guðmundsson, kost á sér í efstu sæti.
Samfylkingin stendur fyrir fundi á Eskifirði í kvöld. Framsögumenn eru
þingmennirnir Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir og
Valgerður Bjarnadóttir.
Fjarðabyggð sigraði í úrslitaleik Síldarvinnslumótsins í Fjarðabyggðarhöllinni í gærdag. Úrslitaleikurinn var milli Hattar og KFF. Höttur komst yfir í fyrri hálfleik, og staðan var 0-1 í hálfleik.
Enbætti Sýslumannsins á Seyðisfirði auglýsir í Morgunblaðinu í dag, fyrsta uppboð á 56 íbúðum í þremur blokkum við Kaupvang 41 til 45 á Egilsstöðum. Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, mánudaginn 15. febrúar næstkomandi klukkan 14:00.
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til að greiða tæplega 3,5 miljónir í skaðabætur vegna alvalegrar líkamsárásar á Seyðisfirði í október árið 2007.
Framboðsmál stjórnmálaaflanna í Fjarðabyggð vegna bæjarstjórnarkosninganna á vori komandi eru nú í deiglunni. Ljóst er að tíminn til kosninga styttist óðum og tíminn til að raða fólki á framboðslistana er ekki ótakmarkaður.
Loðnuvinnsla Síldarvinnslunnar er hafin á Norðfirði og Seyðisfirði, bæði í bræðslu og frystingu, stefnt er að því að frysta sem mest þar til hrognatími hefst.
Fyrirtæki sem stunda vinnslu úr loðnuafurðum hér eystra eru nú sem óðast að búa sig undir loðnuvertíðina. Þó hafa einhver fyrirtæki þegar hafið vinnslu, til dæmis Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði og Síldarvinnslan á Norðfirði, mest þó frá norskum skipum sem eru fyrr á ferðinni vegna þess að þau mega ekki veiða sunnan 64. breiddargráðu.
Hið árlega Ístölt Austurland verður haldið í Egilsstaðavík við Egilsstaði laugardaginn 27. Febrúar næstkomandi. Egilsstaðavíkin liggur við Lagarfljót rétt við Gistiheimilið á Egilsstöðum. Mótið hefur verið fastur liður í vetrardagskránni á Austurlandi undanfarin ár og er mest sótti hestaviðburður á Austurlandi ár hvert. Gestir, jafnt áhugamenn sem atvinnumenn, frá öðrum landshornum hafa undanfarin ár heiðrað Austfirðinga með nærværu sinni, og gert mótin að frábærri skemmtun.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Tölt unglinga
Tölt áhugamanna
Tölt opin flokkur
B-flokkur gæðinga
A-flokkur gæðinga
Fljúgandi skeið*
Skráningargjöld verða kr. 3.500,- per skráning og greiðast á staðnum. Hægt er að skrá sig á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Keppt verður um Ormsbikarinn Eftirsótta í tölti opnum flokki. Sigurvegarar undanfarinna ára eru:
2009 – Tryggvi Björnsson og Júpiter frá Egilsstaðabæ
2008 – Hinrik Bragason og Skúmur frá Neðri Svertingsstöðum
2007 – Daníel Jónsson og Þóroddur frá Þóroddsstöðum
2006 – Guðmundur Björgvinsson og Taktur frá Tjarnarlandi
2005 – Leó Geir Arnarson og Börkur frá Litlu Reykjum
Keppt verður um Skeiðdrekann í A-flokki gæðinga. Sigurvegarar Skeiðdrekans síðustu árin eru:
2009 – Baldvin Ari Guðlaugsson og Freydís frá Steinnesi
2008 – Hinrik Bragason og Smári frá Kollaleiru
2007 – Þórður Þorgeirsson og Ás frá Ármóti (skeið)
2006 – Fjölnir Þorgeirsson og Lukkublesi frá Gýgjarhóli (skeið)
Keppt verður Frostrósina í B-flokki gæðinga. Sigurvegarar Frostrósarinnar hingað til eru:
2009 – Baldvin Ari Guðlaugsson og Sindri frá Vallanesi
2008 – Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti
Athygli er vakin á því að heimamaður hefur enn ekki lyft neinum af höfuðbikurum mótsins!
*mótsstjórn áskilur sér rétt til að fella niður keppni í fljúgandi skeið ef þáttaka verður ekki nægjanleg.
Allar nánari upplýsingar vegna mótsins er að finna á heimasíðu Freyfaxa www.freyfaxi.net og fyrirspurnir má senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Mynd: Frá Ístölt Austurland í Egilsstaðavík. Ljósmynd: Jónas Gunnlaugsson.