Norðfjarðargöng: Fyrsta haftið sprengt - Myndir
Segja má að framkvæmdir við ný Norðfjarðargöng hafi formlega hafist í dag þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, sprengi fyrsta haftið í göngunum. Fjölmenni lagði leið sína að sprengjustaðnum í Eskifirði í dag.Það var klukkan kortér yfir fjögur sem haftið var sprengt. Rökkvað var yfir sem gerði eldglæringarnar við upphaf sprengingarinnar enn augljósari. Hvellurinn frá sprengingunni buldi í fjöllum og á eftir lá reykmettuð lykt eins og á áramótum yfir.
Í verkið í dag voru notuð 600 kg að sprengiefni. Minni sprengingar hafa verið sprengdar síðustu daga til að búa til holu inni í bergið til að koma fyrir sprengiefninu.
Gestirnir biðu niður við skrifstofu verkfræðistofunnar Hnits sem hefur eftirlit með verkinu á meðan sprengingunni stóð. Aðeins þeir sem sprengdu, Hanna Birna, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri ásamt útvöldum starfsmönnum Suðurverks og MetroStav fengu að vera nálægt svæðinu í skjóli á bakvið búkollu.
Eftir sprenginguna fengu hins vegar gestir að fara inn á svæðið og skoða verksummerkin.
Gert er ráð fyrir að göngin verði alls 7900 metrar með vegskálum. Kostnaður við verkið er áætlaður rúmar tólf milljarðar króna. Göngin eiga að vera tilbúin í september 2017.