Norðfjarðargöng: 300 metra múrinn rofinn fyrir jólafrí
Jólafrí starfsmanna við gerð nýrra Norðfjarðarganga hófst á laugardag og liggur því gangnagerði niðri næstu tvær vikurnar.Gröfturinn hefur gengið vel síðustu vikur og verið grafnir yfir 60 metrar að meðaltali. Í síðustu viku voru grafnir 66 metrar og alls 308,5 metrar eða 4% af heildarlengd ganganna.
Starfsmenn stilltu sér upp til myndatöku fyrir síðustu sprenginguna. Þá var búið að hlaða stafninn í 304 metrum en sprengdir voru 4,5 metrar í viðbót.
Norðfjarðarmegin er í gagni undirbúningsvinna en líklega verður byrjað að sprengja þeim megin í lok janúar.
Ljósmynd: Ales Gothard/Metrostav