Norðfjarðargöng: Besta vikan til þessa
Met var slegið í gangagreftrinum í síðustu viku, þegar grafnir voru alls 141 metri til samans á báðum stöfnum. Norðfjarðarmegin var gröfturinn 74 metrar en 67 metrar Eskifjarðarmegin.Jarðlög hafa verið þokkalega hagstæð gangagreftrinum undanfarið og engin erfið jarðlög tafið fyrir greftrinum að gagni. Basalt og kargakennt berg hefur verið allsráðandi á báðum stöfnum, í sumum tilvikum nokkuð sprungið, en þó ekki til neinna vandræða, sem endurspeglast nú í framvindunni.
Nú er síðasta vika gangagraftar fyrir jól. Verktakinn mun loka göngunum á laugardag og allir halda til síns heima. Jarðgangagerðin hefst svo á ný mánudaginn 5. janúar 2015.
Mynd 1: Heillegt basalt hefur einkennt stafn Eskifjarðarmegin. Hér sést hluti af stafni og vinstra vegg en rákirnar eru borholuför.
Mynd 2: Fannardalsmegin hefur skipst á basalt og kargi. Hér er basalt að koma niður úr þekju, neðan þess er um 1,5 m þykkt kargaberg undirlegið af heillegu basalti. Þrátt fyrir lagskiptan stafn hefur gröftur gengið mjög vel.
Myndir: Hnit/Þórey Ólöf Þorgilsdóttir