Norðfjarðargöng: Kjarnahola boruð til að kanna jarðlög
Framvindan hefur verið upp og ofan Eskifjarðarmegin en búið er að borga meira en sex kílómetra af göngunum. Ný setbergslög koma stöðugt í ljós, einkum Eskifjarðarmegin, sem útheimta miklar styrkingar.Nýlega var lokið við að fara í gegnum lag sem var hátt á fjórða metra í upphafi, þó það hafi svo þynnst þegar á leið. Framvindan minnkar með auknum styrkingum. Jafnari gangur hefur verið Norðfjarðarmegin.
Ákveðið hefur verið að bora kjarnaholu innarlega í göngunum Eskifjarðarmegin. Þannig á að reyna að kortleggja þau jarðlög sem eftir er að fara í gegnum frá Eskifirði og freista þess að ná tengingu við jarðlögin, sem verið er að fara í gegnum Norðfjarðarmegin. Það gefur hugmynd um hvers má vænta á komandi vikum.
Vegagerð er hafin í Eskifirði er verið að keyra í vegfyllingar sunnan Eskifjarðarár. Sömuleiðis er hafinn undirbúningur að gerð brúar yfir Eskifjarðará.
Mynd 1: Setbergslag í Eskifirði hefur kallað á talsverðar styrkingar.
Mynd 2: Verið er að undirbúa borun kjarnaholu til að kortleggja þau jarðlög sem framundan eru Eskifjarðarmegin.
Mynd 3: Verið er að hífa forsteypta niðurrekstrarstaura vegna undirstöðu brúar yfir Eskifjarðará.
Myndir: Ófeigur Örn Ófeigsson/Hnit