Norðfjarðargöng

Unnið að frágangi við Norðfjarðargöng

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á þau verk sem þarf að klára áður en Norðfjarðargöng verða opnuð eftir tvær vikur. Skilti á vegum sem vísa á göngin verða sett upp á næstu dögum.

Lokið er við að klæða vegi í bili en starfsmenn Suðurverks hafa unnið að frágangi beggja megin ganga. Í Eskifirði hefur verið unnið við undirstöður skilta, símaklefa og lokunarslár. Verið er að grafa fyrir fyrir rafstreng vegna ljósastaura og undirbúningi að þeir verði reistir.

Á næstu dögum verða sett upp vegrið, skilti og gengið frá á steyptum eyjum við vegamót Norðfjarðarvegar og Eskifjarðarvegar.

Norðfjarðarmegin hefur verið unnið að frágangi athafnasvæðisins næst gangamunna og vegagerð að tengihúsi utan á vegskálanum. Einnig er unnið að frágangi vegfláa og vegrása innan við brú á Norðfjarðará, auk ýmissa annarra frágangsverka vítt og breitt um vinnusvæðið.

Inni í göngum er búið að steypa stéttar milli kantsteins og bergs. Settir hafa verið upp blásarar í lofti ganganna og er því verki nú að ljúka. Þá hefur einnig verið unnið við frágang kantlýsingar í göngum, sem er nýlunda í gangagerð á Íslandi.

Næstu verkefni innan ganga eru svo m.a. frágangur yfirborðsmerkinga á veginum, frágangur gólfa í neyðarrýmum og uppsetning hurða þar, svo eitthvað sé nefnt.

Eins og áður hefur komið fram er stefnt á opnun ganganna laugardaginn 11. nóvember.

Myndir: Verkfræðistofan Hnit/Vignir Steinarsson

Mynd 1: Kantlýsing og blásarar.
Mynd 2: Vegagerð að tengihúsi í Fannardal
Mynd 3. Þjappað undir hellulögn á Eskifirði

nordfjardargong 20171026 1 web

nordfjardargong 20171026 2 web

nordfjardargong 20171026 3 web

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.