Frægir bleikir fílar á leið í meðferð
Hljómsveitanöfn upprennandi rokksveita eru oft með hinu skrautlegasta móti. Júróvision-farinn Guðni Finnsson hóf feril sinn í hljómsveitinni Hálfur undir sæng og yfir var kynnt á svið í Músíktilraunum sveitin Mortus frá Keflavík. Sú kom reyndar frá Egilsstöðum.Á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar í dag sá Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs, ástæðu til að segja frá eigin hljómsveitarferli undir umræðum um æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir í Fjarðabyggð.
Hljómsveit Jens bar hið mikla nafn: Bleikir fílar á leið í meðferð.
Að sögn Jens, sem þykir nokkuð liðtækur píanóleikari, naut sveitin „nokkurrar frægðar" í heimabænum, Eskifirði en „einnig á Reyðarfirði. Við spiluðum á Bryggjuhátíð og hituðum upp fyrir SSSól."