Hvalveiðar á Egilsstöðum

Fyrirsögn Vísis frá í gær að Svandís Svarsdóttir matvælaráðherra muni tilkynna um ákvörðun um hvalveiðar á Egilsstöðum hefur orðið að miklu háðsvopni í höndum netverja þar sem Egilsstaðir hafa sjaldan verið þekktir fyrir mikla útgerð.

Svandís er komin austur í tilefni af ríkisstjórnarfundi eystra. Dagskrá fundarins er ekki opinber fyrirfram en þó hefur verið staðfest að hún muni tilkynna um ákvörðun sína um mögulega framlengingu hvalveiðibanns sem rennur út í dag.

Fyrirsögn Vísis var skýrt afmörkuð um hvalveiðar á Egilsstöðum. Til þessa hafa skilyrði lífríkis í jökulleirnum í Lagarfljóti ekki verið talin vænleg, einkum ekki eftir að Jökulsá á Dal var veitt í það með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar, þótt síðan hafi vissulega veiðst stöku smáfiskar.

Einhverjir hafa tekið skilaboðin nærri sér og búa sig undir að birgja sig inni í húsum sínum þann tíma sem hvalveiðar verða mögulega leyfðar. Aðrir hafa áhyggjur af einu skepnunni í fljótinu sem mögulega gæti líkst stórhveli, Lagarfljótsorminum.

Svo nú er beðið eftir ákvörðun ráðherrans og hvort hvalveiðifloti Kristjáns Loftssonar komi brátt stormandi inn Héraðsflóann.

Mynd: Ronald Herzer


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.