Þrír lemstraðir eftir bílslys á Fagradal
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á Fagradal á föstudagskvöld, þar af var einn sendur á Akureyri með sjúkraflugi.Tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum rákust saman og enduðu báðir utanvegar. Tveir voru í öðrum bílnum og einn í hinum. Að slysinu kom sjúkrabíll frá Slökkviliði Fjarðabyggðar en hann var að flytja sjúkling í Egilsstaði í flug.
Tveir voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað með sjúkrabíl og einn fór í sjúkraflug til Akureyrar ásamt þeim sjúklingi sem þegar var á leið í sjúkraflugið. Sjúkrflugvél Mýflugs gat tekið báða sjúklingana en tafðist aðeins vegna slyssins.
Bílarnir komu úr gagnstæðri átt. Akstursskilyrði voru ágæt á Fagradal en þó rigningarskúrir og myrkvað. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Eskifirði að farþegarnir hefðu verið „lemstraðir"
Helgin var annars róleg í lögregluumdæminu. Þær upplýsingar fengust að rannsókn á máli lögregluþjóns úr Seyðisfjarðarumdæmi, sem grunaður er um að hafa brotið af sér í starfi, sé komin „á lokastig."
Þá gengur rannsókn lögreglunnar á Höfn á stuldi á brúargólfum, sem fundist í fjárhúsum í Álftafirði, ágætlega en brúarhólfið endurheimtist.
Vikan var sömuleiðis róleg í Seyðisfjarðarumdæmi. Þar grandskoðaði lögreglan, í samstarfi við tollayfirvöld, bakgrunn þriggja Litháa sem komu til landsins með Norrænu í síðustu viku. Þeir fengu að halda áfram en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur síðan þurft að hafa afskipti af þeim vegna þjófnaðar.